Saturday, January 31, 2009

Baby Shower/barna sturta? :)


My lab threw me a baby shower on Friday. It was so much fun.

Íslenska: Vinnan mín hélt barna sturtu (baby shower) fyrir mig á föstudaginn.

Fyrsti leikurinn - orðaleikur / First game - word scramble




Vivienne and Stacey
Satoe, me and Ding

Chi-Chi and me

me and my belly (ég og bumban) Vanessa and Stacey

Second game: dress Elmo, pipette and warm milk for Elmo. Did not win this game either. Vivienne, Satoe and Julie have a try. Julie ended up winning! / Seinni leikurinn, klæða Elmo brúðuna í föt og hita mjólk handa honum :) Vann ekki þennan leik heldur. Vivienne, Satoe og Julie spreyta sig. Julie vann.

Cute presents (plus more) from Kelly who couldn't make it/ Sætar gjafir frá Kelly sem var ekki viðstödd

The gift from everyone, can't wait to try it out! Love it! / Gjöfin frá öllum, þetta verður spennandi að leika sér með. Takk fyrir mig!
Great decorations (see behind me). /Mikið um skreytingar, sjá töfluna fyrir aftan mig.



Wednesday, January 21, 2009

Óléttumyndir/Pregnancy pics



Ok, set inn nokkrar óléttumyndir. Er alltaf að bíða eftir frábærri mynd en hún kemur aldrei. Vinstri myndin var tekin í fyrradag, komin 33 vikur. :)

Foreldrar Steven voru annars í heimsókn um helgina. Hér var svokölluð "baby shower". 15 vinkonur og ættingjar Steven komu í boð og gáfu okkur barnagjafir og það var mikið borðað. Steingleymdi að taka myndir. Sorrý. :D

English: Ok, here are some pregnancy pics. Keep waiting for an amazing picture to post, but have decided to stop waiting and post what I have. The picture to the left was taken 2 days ago at 33 weeks. :)

We just had a baby shower this weekend. Susan and Jeff (my in-laws) were in town and about 15 people came to the shower. It was amazing and we got lots and lots of fun things for baby Fass. Thanks Jelena! The only thing is that I totally forgot to take pictures. Sorry!

Friday, January 2, 2009

Jól og áramót á Íslandi/ Holidays in Iceland





Við Steven erum búin að hafa það alveg ótrúlega gott á hótel mömmu. :)

Fórum til Vestmannaeyja í 2 daga strax þegar við komum í útskriftarveislu hjá Guðjóni frænda. Steven var rosa hrifin af eyjunni, aðallega af golfvellinum niðrí dal, verðum að koma aftur þangað um sumar.


Svo gistum við tvær nætur á Hótel Loftleiðum í algjörum lúxus. Annars erum við bara búin að hafa það gott með mömmu, pabba, Elísabetu og Gummi og Ólöf búin að vera ótrúlega dugleg að koma með Kristján litla og leyfa okkur Steven að æfa okkur. So far so good. Höfum ekki misst hann á gólfið né gleymt honum neinsstaðar :D Setti með eina sæta af Kristjáni og mömmu og eina af Steven og Kristjáni.

Jóla og áramótakveðja.
Ps. sendi engin jólakort eða jólakveðju. Þvílíkt letilíf þessi jól geri betur næst, ég lofa.

English: We have spent a great Christmas and New Years in Iceland. We took a 2 day trip to an island south of Iceland, Vestmannaeyjar, where my aunt and uncle live. My cousin Guðjón was graduating from high school and was valedictorian! Good for him. Steven loved the island and wants to come back some day to play golf on the golfcourse by the sea (see 2 pictures, one from the golf course over the sea and another from the boat of the whole island with the lights in town visible).

We spent 2 nights at hotel Loftleidir, using up some Icelandair points and have spent the rest of the time staying with and being doted on by mom, dad and Elisabet. Gummi and Olof have been great about bringing Kristjan to visit so we can get to know him and practice a little. So far so good. We have not dropped him or left him anywhere (just kidding). I have also added a great picture of him and mom (grandma) and him and Steven.

Happy Holidays everyone!
P.s. we did not send any cards or greetings this year. Promise to do better next year.

Friday, November 21, 2008

Ný mynd af litla kút / New baby picture

Fór í auka sónar í dag og fékk þessa rosa fínu þrívíddarmynd af litla kút.

English: I went for an ultrasound today and got a great 3-D picture of baby Fass. :)


Tuesday, November 4, 2008

Bumbumynd og kosning

Jæja, þá eru kosningar byrjaðar hér í Bandaríkjunum. Við Steven mættum klukkan 6 í morgun til að kjósa og það voru um 25 manns í röð. Þetta verður ótrúlegur dagur. Ég fékk svo miða til að fara niðrí bæ og vera með Obama og Biden í kvöld en við Steven ætlum líklega ekki. Það verður líklega milljón manns niðrí bæ og ég held það verði bara alltof troðið og vesen. Förum í staðin í kosningapartý. Áfram Obama!

Annars er hér ein bumbumynd af mér, ekki beint fögur en sýnir hvernig bumban allt í einu varð risastór. Er svei mér farin að halda að drengurinn hafi klónað sig og það séu tvö börn þarna inni. Púff.

Annars er fólk farið að káfa á bumbunni, frekar fyndið. Við vorum í brúðkaupi í Denver, Colorado um helgina og brúðirin og ein brúðarmærin vildu endilega koma við bumbuna svo það er nú ekki hægt að segja nei við því. Denver er annars alveg frábær borg, hefði aldrei dottið það í hug, ótrúlega sæt og við fengum geggjaðar Crepes á frönskum veitingastað, fyndið að fara til Denver til að fara á franskan veitingastað.

Jæja, hætt í bili, hafði það gott! Knús, Kolla

---------------------

Voted for the first time today in the US, so exciting. Steven and I got up at 6am to get an early start and there was already a line of about 25 people when we showed up. I actually got a ticket to go to Grant Park tonight and enjoy the evening with Obama and Biden but think I will pass, I think the crowd will be too much to handle and the facilities probably lacking ;) . So instead we will go to an election party. Go Obama!

I have added a belly picture. Not the most flattering but shows how much my belly has grown in the last 3 weeks or so. Starting to wonder if the little guy cloned a brother in there, seems very big for only one little baby. ;)

Experienced my first "can I touch your belly" moment. We were at a wedding in Denver and the bride and one of the bridesmaids wanted to feel my belly. You can't say no to the bride. :D

Oh and I loved Denver, what a great city, I had no idea it was that cute. Had great Crepes, funny to go to all the way to Denver for a French restaurant.

Kolla

Monday, October 27, 2008

Bumbubúinn

(english translation below)
Jæja, hér byrjar fyrsta bloggið mitt, vonandi hef ég eitthvað skemmtilegt að segja ykkur endrum og eins. :)

Nýjustu fréttir eru að við fórum í 20 vikna sónarinn á föstudaginn. Steven fannst rosa gaman, hafði aldrei komið áður. Fyrir utan spenninginn að sjá litla strákinn okkar þá var hann mikið að spá í hvernig tækið virkaði, hver framleiddi það (General Electric), hvað það kostar og hvort GE framleiddi líka stólinn. Sónarkonan horfði lengi á hann og sagði svo "ertu verkfræðingur" (sem er BS gráðan hans). Frekar fyndið.

Ég fékk 5 myndir (því ég gleymdi að fá myndir síðast).
Hér til hægri er mynd af ilinni? (gvuð hvað maður er góður í íslensku), allavega er eins og bumbubúinn standi ofan á glerborði. 5 tær, lítur vel út. ;)

Fyrir neðan til vinstri er svona geim mynd þar sem maður sér ofan á andlitið og búkinn. Fyrir neðan til hægri er svo mynd sem sannar að hann er strákur (ég á nú ennþá erfitt með að sjá það en mér skilst að hún sé aaaalveg viss, það er víst ör á myndinni sem bendir á sönnunargagnið) :)

Loks er þrívíddarmynd þar sem hann er með hendurnar fyrir framan andlit (vinstra megin) og loks ein prófílmynd (hægra megin).

Ansi myndarlegur strákurinn. Knús, Kolla


English translation:
This is my first blog , I hope I will have enough exciting things to post.

On Friday Steven and I went for our 20 week ultrasound. It was amazing. Besides seeing our little boy, Steven was super interested in the ultrasound equipment (made by GE for anyone who is interested), how much it costs and whether the chair is made by GE too. The ultrasound technician looked at him for a while and then said "are you an engineer" (which was his major in college). Too funny.

I have posted 5 pictures, one of his foot (5 toes, whew), one alien-ish pictures showing his face and body from above, a pictures proving he is a boy (arrow pointing at proof, I still don´t really see it), a 3-D where he has his hands in front of his face and finally a profile pictures showing how handsome he is. :D

Oh and for anyone interested "bumbubúinn" translates to "belly-dweller" or "he who lives in my belly". :D

Kolla