Showing posts with label bumbubúinn. Show all posts
Showing posts with label bumbubúinn. Show all posts

Monday, October 27, 2008

Bumbubúinn

(english translation below)
Jæja, hér byrjar fyrsta bloggið mitt, vonandi hef ég eitthvað skemmtilegt að segja ykkur endrum og eins. :)

Nýjustu fréttir eru að við fórum í 20 vikna sónarinn á föstudaginn. Steven fannst rosa gaman, hafði aldrei komið áður. Fyrir utan spenninginn að sjá litla strákinn okkar þá var hann mikið að spá í hvernig tækið virkaði, hver framleiddi það (General Electric), hvað það kostar og hvort GE framleiddi líka stólinn. Sónarkonan horfði lengi á hann og sagði svo "ertu verkfræðingur" (sem er BS gráðan hans). Frekar fyndið.

Ég fékk 5 myndir (því ég gleymdi að fá myndir síðast).
Hér til hægri er mynd af ilinni? (gvuð hvað maður er góður í íslensku), allavega er eins og bumbubúinn standi ofan á glerborði. 5 tær, lítur vel út. ;)

Fyrir neðan til vinstri er svona geim mynd þar sem maður sér ofan á andlitið og búkinn. Fyrir neðan til hægri er svo mynd sem sannar að hann er strákur (ég á nú ennþá erfitt með að sjá það en mér skilst að hún sé aaaalveg viss, það er víst ör á myndinni sem bendir á sönnunargagnið) :)

Loks er þrívíddarmynd þar sem hann er með hendurnar fyrir framan andlit (vinstra megin) og loks ein prófílmynd (hægra megin).

Ansi myndarlegur strákurinn. Knús, Kolla


English translation:
This is my first blog , I hope I will have enough exciting things to post.

On Friday Steven and I went for our 20 week ultrasound. It was amazing. Besides seeing our little boy, Steven was super interested in the ultrasound equipment (made by GE for anyone who is interested), how much it costs and whether the chair is made by GE too. The ultrasound technician looked at him for a while and then said "are you an engineer" (which was his major in college). Too funny.

I have posted 5 pictures, one of his foot (5 toes, whew), one alien-ish pictures showing his face and body from above, a pictures proving he is a boy (arrow pointing at proof, I still don´t really see it), a 3-D where he has his hands in front of his face and finally a profile pictures showing how handsome he is. :D

Oh and for anyone interested "bumbubúinn" translates to "belly-dweller" or "he who lives in my belly". :D

Kolla