Friday, November 21, 2008

Ný mynd af litla kút / New baby picture

Fór í auka sónar í dag og fékk þessa rosa fínu þrívíddarmynd af litla kút.

English: I went for an ultrasound today and got a great 3-D picture of baby Fass. :)


Tuesday, November 4, 2008

Bumbumynd og kosning

Jæja, þá eru kosningar byrjaðar hér í Bandaríkjunum. Við Steven mættum klukkan 6 í morgun til að kjósa og það voru um 25 manns í röð. Þetta verður ótrúlegur dagur. Ég fékk svo miða til að fara niðrí bæ og vera með Obama og Biden í kvöld en við Steven ætlum líklega ekki. Það verður líklega milljón manns niðrí bæ og ég held það verði bara alltof troðið og vesen. Förum í staðin í kosningapartý. Áfram Obama!

Annars er hér ein bumbumynd af mér, ekki beint fögur en sýnir hvernig bumban allt í einu varð risastór. Er svei mér farin að halda að drengurinn hafi klónað sig og það séu tvö börn þarna inni. Púff.

Annars er fólk farið að káfa á bumbunni, frekar fyndið. Við vorum í brúðkaupi í Denver, Colorado um helgina og brúðirin og ein brúðarmærin vildu endilega koma við bumbuna svo það er nú ekki hægt að segja nei við því. Denver er annars alveg frábær borg, hefði aldrei dottið það í hug, ótrúlega sæt og við fengum geggjaðar Crepes á frönskum veitingastað, fyndið að fara til Denver til að fara á franskan veitingastað.

Jæja, hætt í bili, hafði það gott! Knús, Kolla

---------------------

Voted for the first time today in the US, so exciting. Steven and I got up at 6am to get an early start and there was already a line of about 25 people when we showed up. I actually got a ticket to go to Grant Park tonight and enjoy the evening with Obama and Biden but think I will pass, I think the crowd will be too much to handle and the facilities probably lacking ;) . So instead we will go to an election party. Go Obama!

I have added a belly picture. Not the most flattering but shows how much my belly has grown in the last 3 weeks or so. Starting to wonder if the little guy cloned a brother in there, seems very big for only one little baby. ;)

Experienced my first "can I touch your belly" moment. We were at a wedding in Denver and the bride and one of the bridesmaids wanted to feel my belly. You can't say no to the bride. :D

Oh and I loved Denver, what a great city, I had no idea it was that cute. Had great Crepes, funny to go to all the way to Denver for a French restaurant.

Kolla

Monday, October 27, 2008

Bumbubúinn

(english translation below)
Jæja, hér byrjar fyrsta bloggið mitt, vonandi hef ég eitthvað skemmtilegt að segja ykkur endrum og eins. :)

Nýjustu fréttir eru að við fórum í 20 vikna sónarinn á föstudaginn. Steven fannst rosa gaman, hafði aldrei komið áður. Fyrir utan spenninginn að sjá litla strákinn okkar þá var hann mikið að spá í hvernig tækið virkaði, hver framleiddi það (General Electric), hvað það kostar og hvort GE framleiddi líka stólinn. Sónarkonan horfði lengi á hann og sagði svo "ertu verkfræðingur" (sem er BS gráðan hans). Frekar fyndið.

Ég fékk 5 myndir (því ég gleymdi að fá myndir síðast).
Hér til hægri er mynd af ilinni? (gvuð hvað maður er góður í íslensku), allavega er eins og bumbubúinn standi ofan á glerborði. 5 tær, lítur vel út. ;)

Fyrir neðan til vinstri er svona geim mynd þar sem maður sér ofan á andlitið og búkinn. Fyrir neðan til hægri er svo mynd sem sannar að hann er strákur (ég á nú ennþá erfitt með að sjá það en mér skilst að hún sé aaaalveg viss, það er víst ör á myndinni sem bendir á sönnunargagnið) :)

Loks er þrívíddarmynd þar sem hann er með hendurnar fyrir framan andlit (vinstra megin) og loks ein prófílmynd (hægra megin).

Ansi myndarlegur strákurinn. Knús, Kolla


English translation:
This is my first blog , I hope I will have enough exciting things to post.

On Friday Steven and I went for our 20 week ultrasound. It was amazing. Besides seeing our little boy, Steven was super interested in the ultrasound equipment (made by GE for anyone who is interested), how much it costs and whether the chair is made by GE too. The ultrasound technician looked at him for a while and then said "are you an engineer" (which was his major in college). Too funny.

I have posted 5 pictures, one of his foot (5 toes, whew), one alien-ish pictures showing his face and body from above, a pictures proving he is a boy (arrow pointing at proof, I still don´t really see it), a 3-D where he has his hands in front of his face and finally a profile pictures showing how handsome he is. :D

Oh and for anyone interested "bumbubúinn" translates to "belly-dweller" or "he who lives in my belly". :D

Kolla