
In the last week he has decided to try to crawl, very cute. Work in progress.
I will add videos soon, I promise!
______
íslenska
______
Ólíver er voða hress. Við kláruðum að flytja inn fyrir nokkrum vikum. Ólíver fannst þrælskemmtilegt að leika sér í kössunum (sjá fyrstu mynd).
Í síðustu viku byrjaði hann að reyna að skríða, algjör dúlla. Hann er ekki alveg búinn að ná því en allt að koma (sjá mynd 2).
Afmælið hans nálgast óðum og við svindluðum aðeins. Við leyfðum honum að opna (og setja saman, með smá hjálp frá pabba) afmælisgjöfina sína. Það er lítið plasthús og honum finnst svo skemmtilegt að hringja bjöllunni og opna hurðina (mynd 3).
Hann fékk líka tónlistarborð frá möggu ömmu og kristjáni afa. Það sést í bakgrunni af mynd 2 (bláar lappir og hvítt borð). Hann notar það til að æfa sig að standa og finnst það alveg þrælskemmtilegt, ekki minna skemmtilegt að sleppa höndum og láta mömmu grípa sig.
Lofa að setja inná nokkur video bráðum!
2 comments:
Kjútípæ í kassanum. Geturðu ekki bara lokað kassanum og sent hann heim í 2 vikur í frændaknús?
Loksins komu myndir, nú er bara að telja niður þar til við komu í sumar.
Knús til óliver frá möggu ömmu
Post a Comment