Oliver got to spend time with grandma Sue and grandpa Jeff, aunt Julie and uncle Saul. What a great time he had! The grownups had fun too, I included a picture of Julie, Saul, me and Steven from the vow renewals.
------------
Við fjölskyldan fórum til Napa í Kaliforníu síðustu helgi. Ástæðan var að vinafólk foreldra Steven, Doris og Dale, voru að endurnýja heit sín eftir að hafa verið gift í 25 ár. Doris og Dale komu einmitt til Íslands í brúðkaup okkar. Þetta var alveg yndislegt, við gistum í svona kofum/húsum, Kolla fékk sér nudd og athöfnin sjálf var í miðjum dal í blíðskaparveðri. Ég setti allar myndirnar inná Flickr, þar á meðal eru myndir af vínsmökkun hjá Far Niente sem við fórum á (nema Steven, hann var heima með Ólíver). Fyrir utan að sjá hvernig vínið er búið til þá fengum við að sjá bílana sem fólkið sem á vínekrurnar á. Je minn eini, dýrasti bílinn er metinn á $14 milljónir (dollara ekki krónur).
Ólíver fékk að vera með ömmu Sue og afa Jeff og Julie frænku og Saul frænda. Je minn hvað honum fannst gaman. Við fullorðna fólkið skemmtum okkur vel líka, ég setti inn mynd af Julie, Saul, mér og Steven frá athöfninni.
All the pics/allar myndirnar: http://www.flickr.com/photos/29893701@N07/sets/72157620448760197/

No comments:
Post a Comment