Last weekend Fanney, Hogni and their kids Hildur Theodora and Kristin Bergros came to visit us. Oliver loved playing with the girls. We hope they come back soon!
Finally, I am posting a veeerrry long video. Beware, probably only fun for the grandparents to watch. I was trying to catch Oliver cooing (talking) to me. I was only moderately successful, he is mesmerized by the videocamera and just stares at it. :) (see bottom of page)
We are anxiously awaiting Grandpa Kristján. He will be visiting us from Iceland and will be here on Tuesday!
-----
Í vikunni heimsóttum við Holly, systur Saul (mágur Steven's). Sonur Holly heitir Jack og er um 6 mánaða gamall. Hann verður góður leikfélagi Ólívers þegar hann er orðin eldri. Mynd af Jack er efst á síðunni.
Síðustu helgi komu Fanney, Högni og dætur þeirra Hildur Theodóra og Kristín Bergrós í heimsókn. Mikið var gaman að fá þau. Ólíver var hugfangin af stelpunum. Hér eru nokkrar myndir af Fanney og dætrum hennar (sjá ofar).
Að lokum er eitt video (neðst á síðunni). Mjööööög langt. Varúð, líklega bara skemmtilegt fyrir ömmurnar og afana að skoða. Var að reyna að ná mynd af honum að tala við mig, hann gerir mikið af því þessa dagana en það var erfitt því hann var svo hugfanginn af videokamerunni.
Svo bíðum við eftir Kristjáni afa, hann kemur að heimsækja okkur á þriðjudaginn!
3 comments:
Geggjað myndband og mamma þvílík söngkona.
Knús Magga amma
Jii hvað það virkar notalegt hjá honum liggjandi í rólunni:)
Æðislegt myndbandið af Ólíver. Já það var yndislegt að koma til ykkar, reynum að láta ekki líða of langan tíma þar til við hittumst næst. Maður saknar bara litla töffarans. Hann var svo mikil moli að hann bræddi okkur öll.
Já já það var líka gaman að sjá þig Kolla mín haha:)
Post a Comment